Viðskipti innlent

Skortur á ófaglærðu starfsfólki háir fyrirtækjum

Fimmta hvert (18%) aðildarfyrirtækja SA telja skort á ófaglærðu starfsfólki vera eitt af helstu vandamálum fyrirtækisins við núverandi aðstæður. Skortur á starfsfólki með starfs- og framhaldsmenntun er eitt af helstu vandamálum 13% fyrirtækja og eitt af hverjum tíu fyrirtækjum nefna skort á háskólamenntuðu fólki. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA um vinnumarkaðinn og efnahagshorfur.

Fjallað er um málið á vefsíðu SA. Þar segir að þetta veki athygli í ljósi þess að 11.900 voru skráðir atvinnulausir í ágústlok. Sérstaklega er athyglisvert að mestur skortur er á ófaglærðu starfsfólki en helmingur atvinnulausra telst til þess hóps, 6.000 manns. Telur SA að vinnumiðlun í landinu sé ábótavant og að auka verði virkni hennar.

Samkvæmt könnuninni telja 7% fyrirtækjanna skort á starfsfólki vera helsta vandamál fyrirtækisins. Skortur á ófaglærðu starfsfólki háir þessum fyrirtækjum mest, þar á eftir kemur skortur á starfsfólki með starfs- og framhaldsmenntun og loks skortur á háskólamenntuðu fólki.

Stjórnvöld hafa lýst yfir vilja sínum til að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að tilraunaverkefni um þjónustu við atvinnulausa í því skyni að stuðla m.a. að virkari vinnumarkaðsaðgerðum og vinnumiðlun.

Taki aðilar vinnumarkaðarins að sér faglega stýringu verkefnisins verður nálægð við þá sem eru atvinnulausir og við vinnumarkaðinn meiri en nú er. Markmiðið er að bæta þjónustu við atvinnulausa, nýta öflugri úrræði og virkari vinnumiðlun.

Þessi niðurstaða könnunar SA staðfestir að leita þarf nýrra leiða til að auka virkni vinnumiðlunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×