Skoðun

Ein öflugasta fréttastofa Íslands

Freyr Einarsson skrifar
Fréttastofa Stöðvar 2 hefur verið ein öflugusta fréttastofa landsins í 25 ár. Starfsemi Fréttastofunnar hefur breyst mikið á þessum aldarfjórðungi. Með tilkomu vefsins hefur þjónusta okkar við landsmenn aukist frá því þegar einungis voru fluttar fréttir einu sinni á dag á Stöð 2 og á klukkutímafresti yfir daginn á Bylgjunni. Í dag flytjum við landsmönnum stöðugar fréttir á frétta- og afþreyingarvef okkar Vísi, 365 daga ársins, auk reglulegra fréttatíma á Bylgjunni og Stöð 2.

Vefurinn hefur gjörbylt öllu fréttaumhverfi og nú birtast allar fréttir um leið og þær berast. Aðgengi að eldri fréttum hefur aldrei verið betra og á Vísi má nálgast fréttir okkar langt aftur í tímann. Hægt er að horfa eða hlusta á fréttatíma okkar á Stöð 2 og Bylgjunni í beinni útsendingu á Vísi bæði í tölvum og snjallsímum. Tækninni fleygir hratt fram og höfum við það að markmiði að vera í fremstu röð íslenskra fréttamiðla þegar kemur að tækninýjungum, hvort sem er í sjónvarpi, útvarpi, tölvum eða snjallsímum.

Á síðustu árum hefur áhorf á fréttirnar okkar og Ísland í dag aukist mikið samkvæmt rafrænum mælingum. Nú horfa að meðaltali í kringum 25% landsmanna á fréttatíma Stöðvar 2 og Ísland í dag. Yfir hundrað þúsund manns nota Vísi á hverjum degi og nánast hver einasti Íslendingur vikulega. Við flytjum fréttir á Bylgjunni á klukkutíma fresti allan daginn sem tugþúsundir landsmanna hlusta á. Vegna þeirrar miklu útbreiðslu sem við njótum í sjónvarpi, útvarpi og á vefnum má segja að staða Fréttastofu Stöðvar 2 hafi aldrei verið sterkari.

Stefna okkar er að vera fyrst með fréttirnar og njóta sérstöðu fyrir skýra og lifandi framsetningu frétta. Á fréttastofunni starfa um 60 metnaðarfullir einstaklingar með fjölbreytta menntun, þekkingu og reynslu. Fagfólk í fremstu röð sem hefur það að markmiði að flytja fólkinu í landinu traustar fréttir með ábyrgum hætti. Starfsfólk fréttastofunnar mun áfram þjóna sínu mikilvæga hlutverki að veita landsmönnum öllum fyrsta flokks fréttaþjónustu.




Skoðun

Skoðun

Eftir Kveiksþátt

Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar

Sjá meira


×