Spáir minna atvinnuleysi - samt hátt í sögulegu samhengi 22. september 2011 12:58 Íslandsbanki.
Alls fóru 940 fyrirtæki á hausinn fyrstu sjö mánuði ársins samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka, en það er litlu minna en á síðasta ári þegar 982 fóru á hausinn. Þetta bendir meðal annars til þess að þrátt fyrir að að flest benda til þess að skráð atvinnuleysi verði nokkuð minna í ár en það var í fyrra, er ljóst að aðstæður á vinnumarkaði hér á landi eru enn afar erfiðar. Eins og Íslandsbanki hefur áður fjallað um þá var hækkun á launum í kjarasamningum í vor ekki í takti við aðstæður á vinnumarkaði, auk þess sem fjárhagsleg staða og rekstrarumhverfi margra fyrirtækja er enn afar erfitt. Þrátt fyrir að skráð atvinnuleysi verði minna í ár en í fyrra er það engu að síður enn afar hátt í sögulegu samhengi. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar hefur atvinnuleysi verið að meðaltali um 7,7% á fyrstu átta mánuðum ársins og má reikna með að það verði um 7,4% á árinu í heild. Á fyrstu átta mánuðunum í fyrra mældist það að meðaltali um 8,4% en á árinu í heild var það 8,1%. Greiningadeild Íslandsbanka telur þó nokkuð víst að spá Seðlabankans, sem kom út í ágúst síðastliðnum, komi ekki til með að rætast, það er að segja að atvinnuleysið verði um 7,1% á árinu. Greiningadeild Íslandsbanka bendir á að í ágúst síðastliðnum mældist skráð atvinnuleysi 6,7% og má reikna með að það verði á bilinu 6,5%-6,8% í september og aukist svo þegar líður á haustið. Ef spá seðlabankamanna ætti að rætast þá yrði atvinnuleysi að vera að meðaltali um 6,1% í mánuði hverjum það sem eftir lifir af árinu, „og er nokkuð ljóst þeir hafi gerst nokkuð of bjartsýnir með þá stöðu mála," segir svo í morgunkorninu.
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira