Viðskipti innlent

Steingrímur á fund AGS og Alþjóðabankans

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra er á leiðinni til Washington.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra er á leiðinni til Washington.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, heldur til Washington nú um helgina til að sækja árlegan fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans að því er greinir frá á heimasíðu fjármálaráðuneytisins.

Auk þess að sitja fundinn mun Steingrímur eiga fundi með yfirmönnum og starfsfólki AGS. Einnig mun ráðherrann ræða við fjárfesta og greiningaraðila.

Nýverið lauk formlega samstarfsáætlun AGS og Íslands, sem hófst í lok árs 2008, með sjöttu endurskoðun sjóðsins.

Eins og fram kemur í lokaskýrslu sjóðsins, þá hafa öll meginmarkmið áætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS náð fram að ganga. Á fundinum í Washington gefst þannig tækifæri til að fara yfir forsendur þess að áætlunin heppnaðist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×