Icelandair hagnast um 400 milljónir á öðrum ársfjórðungi 11. ágúst 2011 09:42
Hagnaður Icelandair eftir skatta á öðrum ársfjórðungi ársins var 400 milljónir kr. króna. Á sama tímabili í fyrra 200 milljóna kr. tap á félaginu. Í tilkynningu um uppgjörið segir að heildarvelta var 25,0 milljarðar króna og jókst um 14% frá sama tíma í fyrra. Á fyrstu sex mánuðum ársins var heildarvelta 41,5 milljarðar króna og jókst um 8% á milli ára. Heildareignir námu 94,6 milljörðum kr. í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall var 29,1% í lok tímabilsins, en var 13,4% á sama tíma í fyrra. „Sterkur innri vöxtur einkenndi annan ársfjórðung, en framboðsaukning í millilandaflugi félagsins nam 25% á milli ára. Farþegaaukning á sama tíma var 27%. Velta Loftleiða jókst um 28% og Flugfélag Íslands jók framboð sitt til Grænlands og nam farþegaaukningin á tímabilinu 14%. Þá opnaði samstæðan nýtt hótel á Akureyri, " segir Björgólfur Jóhannson forstjóri félagsins í tilkynningunni. "Hátt olíuverð, eldgos og aðgerðir vegna kjaradeilna voru áskoranir sem við þurftum að takast á við. Kostnaður og tekjutap vegna eldgossins er talið nema um 300 milljónum króna í fjórðungnum og yfirvinnubann flugmanna kostaði félagið sambærilega fjárhæð. Aðgerðir þeirra komu á versta tíma þar sem þjálfun nýrra flugmanna hafði seinkað vegna eldgossins. Olíuverð var að meðaltali 47% hærra en á sama tíma í fyrra og kostnaðarhækkun vegna þess er um 1,7 milljarðar króna. Í ljósi þessa erum við mjög sátt við afkomu félagsins og ljóst að undirliggjandi rekstur er traustur. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk. Eiginfjárhlutfall er 29% og handbært fé og markaðsverðbréf í lok júní námu um 18,4 milljörðum króna. Bókunar- og verkefnastaða fyrir komandi mánuði er góð og er EBITDA spá fyrir árið í heild óbreytt eða 9,5 milljarðar króna."
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira