Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforðinn tæpir 856 milljarðar

Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 854,8 milljarðar kr. í lok júlí og hækkaði um 27 milljarða kr. milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtíma skuldum, nam um 463,8 milljörðum kr. í lok júlí 2011.

Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 391 milljarðar kr. miðað við í lok júlí 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×