Gullverð hækkar látlaust Hafsteinn G. Hauksson skrifar 9. ágúst 2011 20:16
Gullverð hefur hækkað nánast viðstöðulaust undanfarnar vikur, og það eru orðnar nær daglegar fregnir að það hafi náð methæðum. Gullforði Seðlabankans hækkaði um 1,3 milljarða í verði á örfáum vikum. Gullverð sló enn eitt metið í dag þegar únsan af gulli seldist fyrir meira en 1780 dollara, andvirði um 206 þúsund króna, en síðan þá hefur verðið aftur lækkað aðeins. Þessi góðmálmur hefur risið svo mikið í verði vegna þess að fjárfestar líta á gull sem örugga eign sem heldur verðgildi sínu ágætlega og er auðseljanlegt. Þegar ólga grípur um sig á verðbréfamörkuðum kjósa margir fjárfestar að kaupa gull, og þrýsta þannig verðinu upp. Þegar markaðir opnuðu í gær í fyrsta sinn eftir að lánshæfismat Bandaríkjanna var lækkað skaust verðið á gulli til dæmis samstundis upp á við. Yfir daginn hækkaði gullverðið um 3,4 prósent og hafði ekki tekið stærra stökk í tvö ár. Seðlabanki Íslands er vafalaust stærsti eigandi gulls á Íslandi, en bankinn á tæplega 64 þúsund únsur sem geymdar eru í breska seðlabankanum. Þann 18. júlí seldist gullúnsan á 1600 dollara. Það merkir að þegar gullverðið náði hámarki sínu í dag hafði verðmæti gullforða bankans vaxið um meira en 1,3 milljarða króna síðan þá, en það er ávöxtun upp á rúm ellefu prósent á aðeins þremur vikum.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira