Gengið notað til verðhækkana en ekki lækkana 12. júlí 2011 12:55 „
Önnur áhugaverð niðurstaða rannsóknarinnar snýr að ósamhverfum áhrifum gengisbreytinga á verð. Í ljós kemur að fyrirtæki voru mun líklegri til þess að hækka verð eftir gengisfall en lækka það eftir gengisstyrkingu. Sérstaka athygli vekur að þriðjungur fyrirtækja sem voru ekki útsett með beinum hætti fyrir gengisbreytingum hækkuðu verð sitt eftir 30% gengislækkun á fyrri hluta ársins 2008 á meðan ekkert þeirra lækkaði verðið í kjölfar 10% gengisstyrkingar ári fyrr.“ Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýútkomna rannsóknarritgerð sem unnin er á vegum Seðlabankans sem gefur mikilvæga innsýn í verðlagningu íslenskra fyrirtækja á vörum og þjónustu. Sér í lagi hversu mikil og ósamhverf áhrif gengisbreytinga eru á verðlagningu hér á landi. Í Morgunkorninu segir að á styður skýrslan við aðrar nýlegar rannsóknir sem sett hafa spurningarmerki við ábata þess að reka sjálfstæða peningastefnu í íslensku hagkerfi. Í ritgerðinni eru dregnar þær ályktanir að útbreidd verðtrygging, mikið vægi liðinnar verðþróunar við verðákvarðanir íslenskra fyrirtækja og lítil trú stjórnenda þeirra á getu Seðlabankans til þess að viðhalda verðstöðugleika geri peningamálastjórnun hér á landi erfiðari en ella, auk þess sem mikil og ósamhverf gengisáhrif á verðbólgu séu ekki til þess fallin að létta það verk. „Telja höfundar að niðurstöðurnar séu til þess fallnar að draga í efa ábatann af því að reka sjálfstæða peningastefnu með fljótandi gjaldmiðli á jafn litlu myntsvæði þar sem aðstæður eru með framangreindum hætti,“ segir í Morgunkorninu. „Verði slíkt samt sem áður reynt, beri að gera ráðstafanir til þess að auka trúverðugleika og auka samkeppni á markaði í því skyni að gera peningastjórnunina viðráðanlegri, ella sé hætt við að áhrifamáttur Seðlabankans á væntingar einkaaðila verði áfram takmarkaður og verðbólga eftir því sveiflukennd.“
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira