Viðskipti innlent

Uggur vegna sameiningar Byrs og Íslandsbanka

Hafsteinn Hauksson skrifar
Talsmaður bankastarfsmanna segir að uggur sé í félagsmönnum sínum vegna sameiningar Íslandsbanka og Byrs, og telur að það hljóti að koma til uppsagna. Bankinn segir of snemmt að segja til um slíkt.

Í nýrri skýrslu Bankasýslu ríkisins er lögð áhersla á að rekstrarkostnaður bankakerfisins sé of hár. Þar er kallað eftir aukinni hagræðingu í bankakerfinu, bæði innan hvers banka, en einnig með sameiningu fjármálafyrirtækja. Fréttir af slíkum samruna bárust í gær þegar tilkynnt var um að náðst hefði samkomulag um yfirtöku Íslandsbanka á Byr. Að fengnu samþykki Fjármála- og Samkeppniseftirlitsins er ráðgert að sameinaður banki starfi undir merkjum Íslandsbanka.

Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir ljóst að haldið verði áfram á hagræðingarbraut, en um 1700 félagsmenn hans hafa misst vinnuna undanfarin tvö ár.

„Það er ljóst að þegar fyrirtæki eins og Íslandsbanki og Byr sameinast, þá fækkar starfsmönnum," segir Friðbert.

Hann segir að vel hafi verið staðið að fækkun starfsfólks við sameiningu SP-Kef og Landsbankans, til dæmis með því að semja við starfsmenn nærri eftirlaunaaldri, og treystir að hið sama verði gert í Íslandsbanka ef til þess komi.

Upplýsingafulltrúi Íslandsbanka segir þó of snemmt að segja nokkuð til um uppsagnir eða lokanir útibúa fyrr en samþykki eftirlitsaðila liggur fyrir. Verið sé að hefja undirbúning á útfærslu á því hvernig staðið verði að sameiningunni, en reynt verði að taka mið af hagsmunum allra viðkomandi, þar á meðal starfsmanna. Þrátt fyrir það er uggur í bankastarfsmönnum vegna sameiningaráforma, ekki síst því bankastarfsmenn hafa margir hverjir verið lengi í starfi.

„Meðalstarfsaldur er rúm 14 ár, sem er sá lengsti sem þekkist í fyrirtækjum utan ríkisgeirans. Menn eru búnir að starfa mjög lengi og auðvitað eru þeir uggandi. Þetta er líka búið að hanga yfir þeim í langan tíma, og valda miklum óróa," segir Friðbert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×