Viðskipti innlent

Útgerðarfélag Akureyrar endurvakið

Útgerðarfélag Akureyrar hefur verið endurvakið. Samkeppniseftirlitið hefur fyrir sitt leyti samþykkt kaup Snæfells ehf., dótturfélags Samherja hf., á aflaheimildum, landvinnslu á Akureyri og að Laugum og tveimur skipum Brims hf. Skrifað var undir kaupsamning þann 1. maí sl. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að um sé að ræða fiskvinnslu á Akureyri og Laugum ásamt vélum og tækjum, ísfisktogarana Sólbak EA 1 og Mars RE 205, sem áður hét Árbakur; veiðiheimildir í þorski, ýsu, steinbít og skarkola, samtals 5.900 þorskígildistonn. Starfsmenn Brims á Akureyri og á Laugum eru um 150.

Ákveðið hefur verið að nýtt fyrirtæki beri nafnið Útgerðarfélag Akureyringa, ÚA og mun Samherji formlega taka við rekstrinum eftir sumarlokanir nú í byrjun ágúst. ÚA verður rekið sem sérstakt félag innan Samherja. Yfirstjórn félaganna verður sameiginleg og mun Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, stýra útgerð ÚA. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, mun stýra landvinnslu félagsins.

„Útgerðarfélag Akureyringa á sér langa sögu og góða og skipar sérstakan sess í huga margra heimamanna. Það er að sjálfsögðu ábyrgðarhluti að taka við þessum rekstri en við munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×