Viðskipti innlent

Kaupin á Sjóvá samþykkt

Kaup SF1 á meirihluta í Sjóvá (Sjóvá-Almennum tryggingum hf) hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlits, Samkeppniseftirlits og stjórnar ESÍ (Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf). Í tilkynningu frá félaginu segir að þar með séu kaupin lögformlega frágengin og ný stjórn verður formlega skipuð á næsta hluthafafundi félagsins. Fulltrúar SF1 í stjórn Sjóvá verða Ingi Jóhann Guðmundsson, Tómas Kristjánsson og Erna Gísladóttir, sem mun verða formaður nýrrar stjórnar.

Erna segir ánægjulegt að kaupin hafi verið staðfest „enda teljum við að Sjóvá sé mjög áhugavert félag með mikilvægt hlutverk í samfélaginu. Við munum vinna rösklega að því að móta fyrirtækinu nýja stefnu til að búa það sem best undir tækifæri og kröfur framtíðarinnar. Jafnframt verður lögð áhersla á Sjóvá haldi áfram að bjóða viðskiptavinum sínum trausta og góða þjónustu."

„Í mars sl. lá fyrir að SF1, félag í rekstri Stefnis hf, hafði tryggt fjármögnun á kaupum á ríflega helmingi hlutafjár Sjóvár en  kaupsamningurinn var háður skilyrðum um tiltekin atriði, þ.á m. samþykki framagreindra aðila, sem nú hafa veitt samþykki sitt. Stærstu eigendur SF1 eru Gildi lífeyrissjóður, SVN eignafélag ehf. (félag í eigu Síldarvinnslunnar hf.), SÍA I (fagfjárfestasjóður undir stjórn rekstrarfélagsins Stefnis, en eigendur SÍA I eru meðal annars stærstu lífeyrissjóðir landsins), Frjálsi Lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 (LSR), Stapi Lífeyrissjóður og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5. Aðrir eigendur SF1 eru Festa lífeyrissjóður, EGG ehf, (í eigu Ernu Gísladóttur), Arkur ehf. (í eigu Steinunnar Jónsdóttur), Lífeyrissjóður bænda, Sigla ehf. (í eigu Tómasar Kristjánssonar og Finns Reyrs Stefánssonar) og Draupnir fjárfestingafélag ( í eigu Jóns Diðriks Jónssonar). Kaupin eru að fullu fjármögnuð með eiginfjárframlögum og fer enginn hluthafa með stærri hlut en sem svarar til 10% hlutdeildar í Sjóvá,“ segir ennfremur í tilkynningunni frá SF1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×