Bon Jovi á Borginni - jafnar sig eftir hnéaðgerð á Íslandi 4. júlí 2011 08:14 MYND/AP
Bandaríski rokksöngvarinn Jon Bon Jovi er staddur á Íslandi. Hann dvelur í turnsvítunni á Hótel Borg ásamt fjölskyldu sinni, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Bandaríski rokksöngvarinn Jon Bon Jovi er staddur á Íslandi. Hann dvelur í turnsvítunni á Hótel Borg ásamt fjölskyldu sinni, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Bon Jovi kom til landsins um helgina, en hann gekkst nýlega undir aðgerð á hné og hyggst dvelja á landinu í viku á meðan hann jafnar sig. Hann snæddi hádegisverð á veitingastaðnum Silfri á Hótel Borg í hádeginu í gær og vakti talsverða athygli matargesta. Heimildir Fréttablaðsins herma að eftir að spurðist út að Bon Jovi hafi borðað á Silfri hafi fjölmargir pantað borð. Veitingastaðurinn verður því þéttar setinn í kvöld og á morgun en ella, en fólk vonast eflaust til að geta barið goðið augum. Á fimmta tímanum í gær sást Jon Bon Jovi rölta út af íslenska barnum í fylgd með óþekktum manni. Hann var að sögn viðstaddra "klæddur eins og Íslendingur" í gallabuxum, gráum bol og með flennistór sólgleraugu. Jon Bon Jovi er 49 ára gamall og einn allra vinsælasti söngvari Bandaríkjanna. Hann er kvæntur æskuástinni, Dorotheu Hurley og eiga þau saman fjögur börn, þau Stephanie Rose, Jesse James Louis, Jacob Hurley og Romeo Jon. Hljómsveit hans, Bon Jovi var stofnuð árið 1983 og hefur selt meira en 130 milljón plötur um allan heim. Hljómsveitin er þekktust fyrir slagarana It's My Life og Livin' on a Prayer og You Give Love a Bad Name, en þau hafa hljómað á ófáum íslensku pöbbunum í flutningi misgóðra trúbadora. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Sjá meira