Forlagið áfrýjar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins 5. júlí 2011 14:20 Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi og útgáfustjóri Forlagsins.
Forlagið hefur ákveðið að áfrýja ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um 25 milljón kr. stjórnvaldssekt til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í yfirlýsingu segir að Forlagið harmi að Samkeppniseftirlitið hafi tekið ákvörðun um að leggja 25 milljóna króna stjórnvaldssekt á félagið vegna meintra brota á sátt sem gerð var vegna samruna JPV útgáfu og Vegamóta árið 2008. Forlagið er ósammála úrskurðinum og mun skjóta honum til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og síðan til dómstóla ef þörf krefur. „Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins kemur ekkert fram um að Forlagið hafi í reynd raskað samkeppni á bókamarkaði. Öll gögn benda þvert á móti til þess að samkeppni í íslenskri bókaútgáfu blómstri sem aldrei fyrr, þrátt fyrir erfið rekstrarskilyrði á liðnum árum. Þá benda allir hlutlægir mælikvarðar á markaðsstyrk til þess að markaðshlutdeild Forlagsins sé nú í kringum 15-20%. Forlagið telur það óþekkt að fyrirtæki með jafnlitla hlutdeild af heildarmarkaði sé beitt svo harkalegum viðurlögum,“ segir í yfirlýsingunni. „Félagið hefur ítrekað óskað eftir því að ákvæði sáttarinnar verði tekin til endurskoðunar og reyndar óskað eftir því að sáttin verði tekin upp í heild sinni vegna ágalla á henni og breyttra markaðsaðstæðna. Við þeim beiðnum hefur Samkeppniseftirlitið ekki brugðist.“
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira