Fjárfestar ósammála matsfyrirtækjum um Ísland 6. júlí 2011 08:57
Bloomberg fréttaveitan veltir því fyrir sér afhverju alþjóðlegir fjárfestar séu ósammála stóru matsfyrirtækjunum þremur þegar kemur að trausti á íslenska hagkerfinu. Bent er á velheppnað skuldabréfaútboð ríkissjóðs í vor upp á milljarð dollara þar sem eftirspurnin reyndist tvöfalt meiri en framboðið. Líkum er leitt að því að matsfyrirtækin séu að bregðast við ofmati sínu á styrk íslenska efnahagskerfisins fyrir hrunið haustið 2008 með því að vanmeta styrkinn núna. Í þessu samhengi má nefna að Moody´s hélt lánshæfiseinkunni fyrir Ísland í Aaa þar til aðeins fimm mánuðum fyrir hrunið. Sem stendur er lánshæfiseinkunn Íslands í ruslflokki hjá einu af þremur stærstu matsfyrirtækjunum og í neðst fjárfestingarflokki hjá hinum tveimur. Á Bloomberg segir að þetta eru töluvert lægri einkunnir en hjá Spáni en hinsvegar er skuldatryggingaálagið á Íslandi töluvert lægra en á Spáni. Álagið á Ísland fer lækkandi og er komið niður í 228 punkta á meðan álagið á Spán fer hækkandi og stendur í 257 punktum. Rætt er við Valdimar Ármann hagfræðing hjá GAMMA sem segir að í ljósi þess hve skuldabréfaútboðið í vor gekk vel sé ljóst að alþjóðlegir fjárfestar horfi ekki bara til matsfyrirtækjanna heldur fari sjálfir í gegnum tölurnar og upplýsingarnar sem liggja fyrir áður en þeir taka ákvarðanir sínar. Bloomberg ræðir við talsmenn matsfyrirtækjanna þriggja um málið. Paul Rawkins hjá Fitch Ratings segir að ef þróunin á Íslandi verði betri en gert er ráð fyrir geti lánshæfiseinkunn Íslands hækkað. Hinsvegar sé ýmis óvissa til staðar sem taka verði tillit til. Fitch er með lánshæfiseinkunn Íslands í ruslflokki en hefur breytt horfum úr neikvæðum og í stöðugar. Dan Piels hjá Moody´s segir að það sé ekkert misræmi milli lánshæfiseinkunnar Íslands og landa á evru-svæðinu. Skuldabréfaútgáfur séu bara einn af þeim þáttum sem lagðir eru til grundvallar við mat á lánshæfi. Mark Tierney hjá Standard & Poor´s segir að þeir hafi stöðugt auga með þróuninni á Íslandi.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira