Viðskipti innlent

Kortavelta heimilanna jókst um 6,4% milli ára

Kreditkortavelta heimila jókst um 8,7% í janúar–maí í ár miðað við janúar–maí í fyrra. Debetkortavelta jókst um 4,0% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–maí í ár um 6,4% miðað við janúar–maí í fyrra.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar fyrir júnímánuð. Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 22,5% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 10,1% í janúar– maí 2011 miðað við sömu mánuði árið áður.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 2,6% (miðað við vísitöluna í janúar–maí) sem veldur 3,7% raunhækkun á innlendri greiðslukortaveltu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×