Áforma 36 milljarða fjárfestingu í Skaftárhreppi 30. júní 2011 17:30 Skaftá. Mynd úr safni
Suðurorka áformar að fjárfesta fyrir um 36 milljarða króna í Búlandsvirkjun í Skaftártungu í Skaftárhrepp ef til þess fást leyfi. Virkjunarkosturinn gengur út að veita Skaftá neðan Hólaskjóls á Nyrðri Fjallabaksleið í göngum inn á Þorvaldsaura í lóðrétt fallgöng til neðanjarðarstöðvarhúss í Réttarfelli og veita vatninu að lokum um göng í farveg Skaftár við Búland. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að raforkuvinnsla gætti hafist árið 2018 ef áætlanir þess ganga eftir. Áætlað uppsett afl Búlandsvirkjunar er 150 megavött og orkugeta 970 gígavattstundir á ári. Suðurorkaer félag í helmingseigu Íslenskrar Orkuvirkjunar ehf og HS Orku hf, en nokkrir íslenskir lífeyrissjóðir fjárfestu nýverið í tæplega fjórðungshlut í HS Orku. Á vegum Suðurorku hefur á tveimur síðustu árum verið unnið að undirbúningi Búlandsvirkjunar í Skaftártungu. „Athuganir Suðurorku á arðsemi verkefnisins lofa góðu en enn hefur ekki verið leitað eftir samningum við hugsanlega raforkukaupendur enda er kosturinn eins og margir aðrir hluti 2. áfanga rammaáætlunar," segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að fyrirtækið hafi verið stofnað í kringum samninga við landeigendur og meirihluta vatnsréttarhafa til undirbúnings og virkjunar Skaftár. „Landeigendasamningarnir ganga út á að landeigendur og vatnsréttarhafar fá greidd auðlindagjöld sem nema hlutfalli af raforkusölu virkjunarinnar og fer hlutfallið hækkandi eftir því sem á samningstímann líður. Samningarnir eru sambærilegir þeim sem Íslensk Orkuvirkjun gerði við Seyðisfjarðarkaupstað vegna 9,8 MW virkjunar í Fjarðará. Auðlindagjöld landeigendasamninga Suðurorku við landeigendur í Skaftárhrepp eru reiknuð á svipaðan hátt og hæstu kröfur vatnsréttarhafa vegna Kárahnjúkavirkjunar."
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira