Actavis hafði sigur í hæstarétti Bandaríkjanna 23. júní 2011 15:29
Actavis, ásamt tveimur öðrum alþjóðlegum samheitalyfjafyrirtækjum, hafði sigur í máli fyrir hæstarétti Bandaríkjanna. Rétturinn dæmdi þessum fyrirtækjum í vil í dómsmáli um hvort hægt væri að lögsækja þau fyrir héraðsdómstólum í Bandaríkjunum fyrir ófullnægjandi upplýsingar um hliðarverkanir lyfja þeirra. Í frétt um málið á Reuters segir að fimm af níu dómurum hæstiréttur Bandaríkjanna hafi dæmt fyrirtækjunum í vil og er dómurinn í samræmi við annan dóm réttarins sem kveðinn var upp árið 2009. Hin fyrirtækin eru Teva og Mylan. Hvað mál Actavis varðar hafði Julie Demahy lögsótt Actavis vegna þess að ekki var aðvörun um hættu á taugatruflunum á umbúðum lyfsins metocloppramide sem notað er gegn brjóstsviða og ógleði. Upphaflegt nafn þessa lyfs er Reglan. Actavis bar því við að FDA, bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin, hefði þegar samþykkt upprunalyfið og að samkvæmt alríkislögum í Bandaríkjunum væri samheitalyfjum skylt að hafa sömu merkingar og eru á upprunalyfjunum. Það var síðan árið 2009 sem FDA breytti sinni niðurstöðu og ákvað að fyrrgreind aðvörun ætti að vera á þessu lyfi. Demahy, og önnur kona sem lögsótt hafði öll samheitalyfjafyrirtækin þrjú, hafði notið stuðnings stjórnar Baracks Obama Bandaríkjaforseta fyrir málsóknum sínum. Í úrskurði meirihluta réttarins segir að í málum sem þessum eigi alríkislög að hafa forgang fram yfir löggjöf einstakra ríkja í Bandaríkjunum.
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira