Hátt í 300 ársverk vegna námsmannaíbúða 24. júní 2011 13:15 Mynd/Pjetur
Ríkisstjórnin samþykkti í dag fjárheimildir fyrir Íbúðalánasjóð sem tryggja fjármögnun stúdentagarða í Vatnsmýrinni. Um er að ræða 280 námsmannaíbúðir og geta framkvæmdir hafist í haust, en áætlað er að þær skapi um 300 ársverk. Líkt og greint var frá fyrr í mánuðinum hefur borgarráð samþykkt breytingar á aðalskipulagi borgarinnar vegna háskólasvæðisins þar sem gert er ráð fyrir að þétt byggð rís með umræddum stúdentaíbúðum, starfsemi Háskóla Íslands og Vísindagörðum. Heildarkostnaður vegna stúdentaíbúðanna er áætlaður um 4 milljarðar króna og mun Íbúðalánasjóður veita lán fyrir 90% kostnaðarins, að því er fram kemur á vef velferðarráðuneytisins. Samkvæmt lögum um húsnæðismál og reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, er Íbúðalánasjóði heimilt að veita lán til framkvæmda af þessu tagi á 3,5% vöxtum. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur áður samþykkt lánsvilyrði til Félagsstofnunar stúdenta vegna fyrirhugaðra framkvæmda en með fyrirvara um að fjárheimildir Íbúðalánasjóðs væru tryggðar á þeim tíma sem lánin koma til afgreiðslu, að öllu óbreyttu árin 2013 og 2014. Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var samþykkt tillaga Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, um fjárheimildir til Íbúðalánasjóðs árin 2013 og 2014 vegna áformaðra framkvæmda Félagsstofnunar stúdenta. Fram kemur á vef velferðarráðuneytisins að undirbúningur framkvæmda vegna stúdentaíbúðanna sé vel á veg kominn. Framkvæmdir geta farið af stað í haust og er sem fyrr segir áætlað að þær skapi um 300 ársverk. Gert er ráð fyrir að fyrri áfanga verksins ljúki í árslok 2013 en að framkvæmdunum í heild ljúki árið 2014.
Tengdar fréttir Vísindagarðar og hátt í 300 stúdentaíbúðir Borgarráð hefur samþykkt breytingar á aðalskipulagi borgarinnar vegna háskólasvæðisins þar sem gert er ráð fyrir að þétt byggð rís með allt að 300 stúdentaíbúðum, starfsemi Háskóla Íslands og Vísindagörðum. Um er að ræða um uppbyggingu á um 74 þúsund fermetra lóð sem afmarkast af Eggertsgötu, Oddagötu og Sturlugötu. 9. júní 2011 14:53 Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira
Vísindagarðar og hátt í 300 stúdentaíbúðir Borgarráð hefur samþykkt breytingar á aðalskipulagi borgarinnar vegna háskólasvæðisins þar sem gert er ráð fyrir að þétt byggð rís með allt að 300 stúdentaíbúðum, starfsemi Háskóla Íslands og Vísindagörðum. Um er að ræða um uppbyggingu á um 74 þúsund fermetra lóð sem afmarkast af Eggertsgötu, Oddagötu og Sturlugötu. 9. júní 2011 14:53