Viðskipti innlent

Ársverðbólgan komin í 4,2%

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis einnig um 4,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% sem jafngildir 9,2% verðbólgu á ári (7,9% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní er 379,5 stig  og hækkaði um 0,50% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 360,7 stig og hækkaði um 0,53% frá maí.

Hækkunin er í takt við spár sérfræðinga sem höfðu reiknað með að ársverðbólgan yrði á bilinu 4,1% til 4,3%.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,2% (vísitöluáhrif 0,17%) aðallega vegna 6,9% hækkunar á kjöti og kjötvörum (0,18%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,7% (0,08%), þar af voru 0,1% áhrif af hækkun markaðsverðs og -0,02% áhrif af lækkun vaxta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×