Mál vegna skuldabréfs Björgólfs Guðmundssonar fellt niður Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. júní 2011 18:30 Stefán Héðinn Stefánsson (í miðjunni) var í skýrslutöku hinn 20. janúar sl. Hann er enn með réttarstöðu grunaðs manns í tengslum við rannsókn á skilasvikum í Landsvaka.
Sérstakur saksóknari hefur fellt niður rannsókn á peningamarkaðssjóðum Landsbankans vegna kaupa á skuldabréfi Björgólfs Guðmundssonar. Stefán Héðinn Stefánsson, var framkvæmdastjóri eignastýringasviðs Landsbankans og stjórnarformaður Landsvaka, en hann var handtekinn og yfirheyrður í janúar síðastliðnum vegna rannsóknar sérstaks saksóknara meðal annars á kaupum Landsbankans á verðbréfum af sjóðum Landsvaka hinn 6. október 2008, eftir lokun sjóðanna. Það mál er enn í rannsókn vegna gruns um skilasvik. Stefán Héðinn var líka grunaður um brot vegna þess að Landsvaki keypti skuldabréf útgefið af Björgólfi Guðmundssyni sjálfum, en grunsemdir voru um að með þessu hefði Landsvaki fyrir út fyrir heimildir sjóðsins til fjárfestinga. Árið 2005 keypti Landsvaki skuldabréf upp á 400 milljónir króna sem útgefið var af Björgólfi Guðmundssyni. Greitt var af bréfinu framan af, en eftirstöðvar þess voru 190 milljónir króna við fall bankanna. Björgólfur var þá formaður bankaráðs Landsbankans og einn aðaleigenda hans. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar leiddi rannsókn á þessu máli í ljós að stjórnendur sjóðsins höfðu ekki ásetning um að fara út fyrir fjárfestingarstefnuna heldur hafi, á tímapunkti kaupanna, bréf með persónulegri ábyrgð Björgólfs talin traust fjárfesting. Einnig voru ákvæði í samþykktum Landsvaka ekki þess eðlis að hægt væri að slá því föstu að kaup á skuldabréfi einstaklings teldist brot á samþykktum, sérstaklega ef um væri að ræða traust bréf. Rannsókn sérstaks saksóknara í máli Stefáns og Landsvaka í tilviki skuldabréfs Björgólfs Guðmundssonar hefur nú verið felld niður. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar fékk verjandi Stefáns Héðins bréf þess efnis í síðustu viku. Stefán Héðinn og kaup Landsbankans á verðbréfum af sjóðum Landsvaka hinn 6. október 2008, eftir lokun sjóðanna, er enn í rannsókn vegna gruns um skilasvik. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari sagði við fréttastofu í dag að rannsókn á kaupunum á skuldabréfinu hafi leitt til þess að ekki hafi verið tilefni til að höfða mál með útgáfu ákæru. Rannsókn á því máli telst því lokið. Málefni Landsvaka hefur nú þegar komið til kasta dómstólanna, en aðeins í einkaréttarlegu tilliti. Í nóvember í fyrra vísaði Hæstiréttur frá skaðabótamálum, sem hópur einstaklinga og fyrirtækja höfðaði gegn Landsbankanum og Landsvaka, vegna rýrnunar á peningamarkaðssjóðunum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt að Landsvaki og Landsbankinn væru skaðabótaskyldir. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira