Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs hækkar töluvert

Vísitala framleiðsluverðs í maí var 216,9 stig og hækkaði um 1,6% frá apríl í ár. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 249,3 stig, sem er hækkun um 0,8% (vísitöluáhrif 0,5%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 270,7 stig, hækkaði um 4,6% (1,7%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,3% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 3,7% (-0,6%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,5% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,9% (1,6%).

Miðað við maí 2010 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,3% en verðvísitala sjávarafurða um 11,4%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 2,5% en matvælaverð hefur hækkað um 4,9%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×