Ný fjármálamiðstöð Íslandsbanka opnar í dag 29. júní 2011 09:25
Í dag opnar Íslandsbanki nýtt útibú að Suðurlandsbraut 14 í Reykjavík. Í nýja útibúinu sameinast útibú bankans á Háaleitisbraut og Suðurlandsbraut 30, auk þess sem Íslandsbanki Fjármögnun mun flytja starfsemi sína í húsnæðið þann 11. júlí næstkomandi. Verður því um að ræða miðstöð fjármálaþjónustu Íslandsbanka þar sem verður saman kominn hópur reynslumikilla starfsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Sameining útibúanna er liður í að auka hagræði í rekstri útibúanets Íslandsbanka og bjóða uppá öfluga fjármálamiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið hefur verið mikið endurnýjað og lögð áhersla á gott aðgengi fyrir viðskiptavini. Í nýja útibúinu verður einnig geymsluhólfamiðstöð fyrir höfuðborgarsvæðið. Öll reikningsnúmer útibúanna beggja munu halda sér við sameininguna og því mun breytingin ekki valda neinum óþægindum fyrir viðskiptavini. Þá verður engum starfsmönnum sagt upp. Útibússtjóri nýja útibúsins verður Vilborg Þórarinsdóttir og aðstoðarútibússtjóri verður Guðmundur Kristjánsson, en þau hafa áratuga reynslu í banka og fjármálastarfsemi. Í tilefni opnunar útibúsins verður haldin opnunarhátíð í dag þar sem boðið verður uppá kaffiveitingar, lifandi tónlist og blöðrur og glaðning fyrir börnin. „Með þessari sameiningu útibúanna á nýjum stað, auk þess sem Íslandsbanki Fjármögnun flytur í húsnæðið, er ætlunin að búa til fjármálamiðstöð sem veitir bæði fyrirtækjum og einstaklingum öfluga fjármálaþjónustu. Þetta er liður í því að hagræða og svara síauknum kröfum viðskiptavina okkar um víðtæka fjármálaþjónustu. Það er mín trú að þessi sameining sé mikið tækifæri til að bæta og efla okkar þjónustu og ekki síst að sækja fram,” segir Una Steinsdóttir, framkvæmdarstjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka í tilkynningunni.
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira