Starfsmenn Arion útskrifast frá Bifröst 1. júní 2011 13:40 Mynd/Háskólinn á Bifröst
Nú um mánaðarmótin voru 46 starfsmenn Arion banka, sem starfa í útibúum bankans vítt og breitt um landið, brautskráðir úr sérhæfðu undirbúningsnámi í fjármálaráðgjöf frá Háskólanum á Bifröst. Námið er liður í samstarfsverkefni Arion banka og háskólans sem hófst haustið 2010. „Samstarfið er ekki síst merkilegt fyrir þær sakir að akademískum fræðum háskólans er fléttað saman við þekkingar- og reynsluheim bankans þannig að úr verður lifandi nám. Í ljósi góðrar reynslu má gera ráð fyrir að meira kveði að slíku samstarfi í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst. Fræðslustarf Arion banka hefur undanfarin ár verið víðtækt. Námið sem nú var að ljúka er afrakstur þarfagreiningar meðal starfsmanna og upp úr þeirri vinnu kom til samstarf við Háskólann á Bifröst sem þróaði tillögurnar áfram í samvinnu við bankann. Fyrr á árinu luku 300 starfsmenn bankans umfangsmiklu námi um vörur og kerfi sem alfarið fór fram í fjarnámi. „Það er óhætt að segja að mikill metnaður hafi verið lagður í verkefnið af hálfu bankans sem og Háskólans á Bifröst en verkefnið er það umfangsmesta sem skólinn hefur tekið að sér fyrir fyrirtæki í atvinnulífinu. Arion banki hefur unnið mikið brautryðjendastarf fyrir fyrirtæki á fjármálamarkaði og haft hugrekki til að fara nýjar leiðir við að koma námi á framfæri til starfsfólks, með blöndu af fjarnámi og vinnulotum á Bifröst" sagði Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst við útskriftarathöfnina. Námið er hluti af menntunarátaki sem efnt var til í kjölfar stefnumótunar bankans þar sem áhersla er lögð á getu starfsmanna til að veita fyrirtækjum og einstaklingum fjölbreytta fjármálaþjónustu með persónulegri þjónustu og sérsniðnum lausnum.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira