Fjöldi ferðamanna í maí einn sá mesti frá upphafi 3. júní 2011 10:13
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 37.212 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í maí síðastliðnum og er um að ræða einn af fjölmennustu maímánuðum frá upphafi talninga. Fjöldi ferðamanna hefur þrívegis áður verið um og yfir 35 þúsund í maí eða árin 2007, 2008 og 2009. Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að þegar bornar eru saman tölur frá maí í fyrra þarf að hafa í huga að þá hafði gosið í Eyjafjallajökli veruleg áhrif á umferð til og frá landinu. Því eru sveiflur miklar á milli ára. Um er að ræða 31,5% aukningu ferðamanna frá því í maí á síðasta ári, en að meðtöldum 1.300 brottförum í maí í fyrra um Akureyrarflugvöll er aukningin 25,7%. Gosið í Grímsvötnum virðist hins vegar ekki hafa haft umtalsverð áhrif á flugsamgöngur til og frá landinu. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í maí frá Bandaríkjunum (13,8%), Noregi (12,3%), Danmörku (9,2%), Bretlandi (9,1%), Þýskalandi (8,2%) og Svíþjóð (7,9%). Samanlagt voru Norðurlandabúar um þriðjungur ferðamanna í maí. Alls hafa 141 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 24.400 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Að viðbættum 2.300 brottförum erlendra gesta í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll í apríl og maí á árinu 2010 nemur fjölgunin 18,6%. Aukning er frá öllum mörkuðum, langmest frá N-Ameríku eða 46,2%. Þar næst kemur Mið- og Suður Evrópa með 26,8% aukningu og í þriðja sæti koma Norðurlöndin með tæplega 27% aukningu. Aukning frá Bretlandi mælist minni eða tæp 8% og um 11% frá löndum sem talin eru sameiginlega og flokkast undir ,,annað“. Brottförum Íslendinga fjölgaði um þriðjung í maí frá því í fyrra, voru um 31 þúsund í ár en um 23 þúsund í fyrra. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur fjölgað um tæplega fjórðung í samanburði við sama tímabil árið 2010. Framundan eru stærstu ferðamannamánuðir ársins. Talsverðar væntingar eru til sumarsins og er talið að met verði slegið í komum erlendra ferðamanna til landsins. Ísland hefur fengið mikla umfjöllun í tengslum við gosið í Grímsvötnum, sem að langmestu leyti virðist ætla að skila sér á jákvæðan hátt fyrir ferðaþjónustuna.
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira