Ríkissjóður gefur út skuldabréf fyrir einn milljarð Bandaríkjadala 9. júní 2011 17:54
Ríkissjóður Íslands gekk í dag frá samningum um útgáfu skuldabréfa að fjárhæð 1 milljarði Bandaríkjadala, jafngildi um 114 milljarða króna. Skuldabréfin bera fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 4,993% vöxtum. Kjörin jafngilda 3,20% álagi á vexti á millibankamarkaði. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 2 milljörðum Bandaríkjadala. Fjárfestahópurinn samanstendur aðallega af fagfjárfestum frá Bandaríkjunum og Evrópu. Skuldabréfaútgáfan kom í framhaldi af vikulangri kynningarherferð í Bandaríkjunum og Evrópu. Umsjón var í höndum Barclays Capital, Citi og UBS Investment Bank. Á vef fjármálaráðuneytisins segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að aðgerðin marki heilmikil tímamót fyrir Ísland. „Ég er afar ánægður með að ríkissjóður sé aftur kominn á markað nú aðeins tveimur og hálfu ári eftir hrun. Það er sérstaklega ánægjulegt að það reyndist vera jafn mikil eftirspurn og raun ber vitni. Viðtökur fjárfesta styðja skoðun okkur á því að endurreisn efnahagslífsins sé að heppnast og horfurnar séu góðar. Með þessu er ríkið að brjóta vindinn og það ætti að auðvelda öðrum hið sama í framhaldinu."
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira