Ísafjarðarbær rekinn með 150 milljóna halla í fyrra 30. maí 2011 09:30
Ísafjarðarbær var rekinn með 150 milljóna kr. halla á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu um ársreikning bæjarins til Kauphallarinnar. Heildarrekstrartekjur bæjarsjóðs og stofnana hans á árinu 2010 voru rúmlega 2.7 milljarðar kr. og rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði 2.55 milljarðar kr. Afkoma af reglulegri starfsemi var jákvæð um 182 milljónir kr., afskriftir voru 233 milljónir kr., þar af 53 milljóna kr. aukaafskrift vegna lokunar Funa. Afkoma fjármagnsliða mun betri en í fyrra, gjöldin voru 98 milljónir kr. umfram tekjur og tapið því 150 milljónir kr. eftir fjármagnsliði. Í tilkynningu segir að verðbólgan hefur farið minnkandi og krónan styrktist, þannig að niðurstaða fjármagnsliða var tiltölulega góð miðað við skuldsetningu. Þá var hlutafé afskrifað um 20 milljónir kr. og var það fall sparisjóðanna sem olli því að mestu. Heildarveltufjármunir í árslok 2010 voru um 416 milljónir kr. að frádregnum kröfum á eigin fyrirtæki. Heildarfastafjármunir voru um 5.4 milljarðar kr. í árslok 2010. Á árinu var gert verðmat á lóðum og lendum og það sett inn í efnahaginn og bætti það fastafjármuni og eigið fé sveitarfélagsins verulega, eða um 788 milljónir kr. Rekstur sorpbrennslunnar var lagður niður og í kjölfarið afskrifaður vélbúnaður og hitavatnsleiðsla. Skuldir alls, skammtíma- og langtímaskuldir, voru um 4.2 milljarðar kr. að frádregnum kröfum á eignarsjóð og á eigin fyrirtæki. Áfallnar lífeyrisskuldbindingar voru 946 milljónir kr. í árslok 2010 og eigið fé 754 milljónir kr.
Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira