LS Retail aflýsir alþjóðlegri ráðstefnu vegna gossins 23. maí 2011 13:45
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur aflýst alþjóðlegri ráðstefnu sinni sem hefjast átti í hinu nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsi Hörpu á morgun. Ástæðan er eldgosið í Grímsvötnum og óvissan sem það veldur um flugsamgöngur til og frá landinu. Í tilkynningu segir að skráðir þátttakendur í ráðstefnunni hafi verið hátt í 200 og von á ríflega 130 erlendum gestum til landsins, frá flestum löndum Evrópu, allmörgum Asíulöndum, Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Stærstur hluti ráðstefnugesta var væntanlegur til landsins í dag. Ráðstefnan er árleg og þar koma saman fulltrúar LS Retail, samstarfsaðila og Microsoft. „Að fella þurfi niður ráðstefnuna eru vissulega mikil vonbrigði fyrir stjórnendur og starfsmenn LS Retail, sem og ýmsa þjónustuaðila sem ætluðu að koma að ráðstefnuhaldinu,“ segir í tilkynningunni. LS Retail er rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í þróun og sölu á hugbúnaðarlausnum fyrir verslunar- og veitingarekstur á alþjóðamarkaði. LS Retail þróar lausnir byggðar á Microsoft Dynamics NAV og Microsoft Dynamics AX og hafa þær nú verið seldar og settar upp í 132 löndum og þýddar á 33 tungumál. Þrátt fyrir samdrátt hjá fyrirtækjum víða um heim hefur íslenska hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail vaxið og dafnað á undanförnum árum.
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira