Viðskipti innlent

Forstjóri VÍS hættir vegna gagnrýni FME

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðmundar Örn Gunnarsson.
Guðmundar Örn Gunnarsson.
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur fallist á ósk Guðmundar Arnar Gunnarssonar um að láta af störfum sem forstjóri félagsins. Jafnframt mun hann láta af störfum sem forstjóri Líftryggingafélags Íslands. Ákvörðun Guðmundar er tekin í framhaldi af úttekt Fjármálaeftirlitsins á starfsemi og viðskiptaháttum VÍS í tíð eldri stjórna frá árinu 2008. Gengið hefur verið frá tímabundinni ráðningu Friðriks Bragasonar núverandi framkvæmdastjóra vátryggingasviðs VÍS í starf forstjóra félagsins. 

„Gagnrýni Fjármálaeftirlitsins á störf mín í forstjórastóli félaganna kemur mér á óvart og veldur því vonbrigðum. Með ákvörðun minni um að víkja til hliðar er ég ekki að fallast á aðfinnslur FME heldur freista þess að standa sem fyrr vörð um hagsmuni VÍS og Líftryggingafélags Íslands. Ég þakka stjórn félagsins, samstarfsfólki mínu, viðskiptavinum félagsins og samstarfsaðilum ánægjulegt samstarf og óska félögunum alls hins besta í framtíðinni," segir Guðmundur í tilkynningu frá VÍS.

Í tilkynninggu segir Axel Gíslason, stjórnarformaður Vátryggingafélag Íslands, að félagið standi styrkum fjárhagslegum fótum. Heildareignir félagsins um síðustu áramót hafi verið um 35 milljarðar króna og eigið fé ríflega ellefu milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×