Skuldum breytt í hlutafé og jörð veðsett fyrir milljarð 24. maí 2011 12:38 Jón Ólafsson. Jörð undir vatnsverksmiðju á vegum fyrirtækis hans í Ölfusi er veðsett fyrir 1,1 milljarð króna.
Hluta af skuldum vatnsfyrirtækis Jóns Ólafssonar hefur verið breytt í hlutafé. Þá hafa erlendir auðkýfingar sem eru vinir hans keypt hlut í fyrirtækinu. Jón keypti jörð undir vatnsverksmiðju sína með hundrað milljóna króna kúluláni frá sveitarfélaginu Ölfusi. Icelandic Water Holdings framleiðir átappað flöskuvatn undir merkjum Icelandic Glacial á jörðinni Hlíðarenda í Ölfusi, við Þorlákshöfn, en Jón Ólafsson á meirihluta í fyrirtækinu ásamt syni sínum. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að fyrirtækið hafi lokið við hlutafjáraukningu upp á fjörutíu milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 4,7 milljarða íslenskra króna. Blaðið greinir frá því að tæp 70 prósent af hlutafénu, 28 milljónir dala, um 3,3 milljarðar króna, hafi falist í breytingu á skuldum í hlutafé. Afgangurinn hafi verið nýtt hlutafé. Við hlutafjáraukninguna hækkaði eignarhluti bandaríska drykkjavörufyrirtækisins Anheurser-Busch InBev í fyrirtækinu úr nítján prósentum í 23,3 prósent. Þá bættust nýir hluthafar við, bandaríski fjárfestingarbankinn JP Morgan auk tveggja kunningja Jóns, en um er að ræða suður-afríska fjárfestirinn Dennis Raeburn og Grikkjann Eiles Mavroleon. Eignarhlutur Jón Ólafssonar og Kristjáns sonar lækkaði við þessar breytingar úr 73 prósentum í 55 prósent, að því er fram kemur í Fréttablaðinu.Fékk kúlulán frá sveitarfélaginu Ölfusi fyrir jörðinni Iceland Water Holdings hefur ekki skilað ársreikningi vegna síðasta rekstrarárs. Félagið tapaði 12,5 milljónum dala árið 2009, þar af voru 10,3 milljónir dala, jafnvirði 1,2 milljarða, beint rekstrartap. Skuldir félagsins námu þá tæpum 67 milljónum dala, tæpum 7,9 milljörðum króna. Jón fullyrðir að staða félagsins sé nú betri sem þakka megi aukningu í sölu. Stærstur hluti sölutekna koma frá Bandaríkjunum en Jón segir að fyrirtækið hafi nú hafið sölu á vatninu í bæði Rússlandi og Kína. Frá því var greint fyrir helgi að Landsbankinn hefði stefnt Jóni vegna 420 milljóna króna ábyrgðar sem hann gekkst í vegna lánveitinga Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef) til félagsins Jervistone Limited á Jómfrúreyjum. En Landsbankann tók við skuldunum þegar bankinn tók yfir starfsemi SpKef. Jón hefur fullyrt að skuldamál sín gagnvart Landsbankanum hafi ekki áhrif á aðra starfsemi hans eða fyrirtækja í hans eigu. Þá greindi DV frá því í helgarblaði sínu að Jón hefði byggt upp vatnsverksmiðjuna á Hlíðarenda eftir að sveitarfélagið Ölfus hefði selt honum jörð undir verksmiðjuna gegn 100 milljóna króna kúuláni. Þ.e Jón hefði keypt jörðina af sveitarfélaginu án þess að greiða fyrir hana með peningum, heldur fengið lán fyrir henni frá sveitarfélaginu sjálfu. Í DV kom jafnframt fram að jörðin í Ölfusi væri veðsett fyrir nærri ellefu hundruð milljónir króna, en veðhafarnir eru nokkur fjármálafyrirtæki og íslenskir lífeyrissjóðir. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira