Endurgreiða 20% af vöxtum af lánum einstaklinga Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. maí 2011 16:36 Landsbanki Íslands.
Landsbankinn mun endurgreiða 20% af vöxtum af lánum einstaklinga og heimila sem greiddir hafa verið frá 31. desember 2008 til 30. apríl síðastliðins. Þetta nýtist öllum einstaklingum sem voru í skilum við bankann þann 30. apríl. Endurgreiðslan kemur til lækkunar eftirstöðva skulda en ef viðskiptavinur er skuldlaus verður endurgreiðslan lögð inn á innlánsreikning viðkomandi. Í tilkynningu frá Landsbakanum segir að endurgreiðsla vaxta af meðalháu húsnæðisláni á þessu tímabili hlaupi á hundruðum þúsunda króna. Endurgreiðslan er að hámarki 1 milljón króna. Þeir vextir sem þegar hafa verið endurgreiddir koma til frádráttar. Endurgreiðsla vaxta er ein þriggja nýrra leiða sem Landsbankinn hyggst fara til að bjóða einstaklingum í viðskiptum við bankann til að lækka skuldir sínar. Bankinn áætlar að þessar þrjár leiðir snerti á bilinu 60. - 70.000 viðskiptavini en skipti verulegu máli fyrir ríflega 30.000 manns. Önnur leiðin sem Landsbankinn mun fara er að gera tvær mikilsverðar breytingar á svokallaðri 110% leið sem miðuð er að þeim viðskiptavinum sem eiga yfirveðsett húsnæði. Nú verður miðað við fasteignamat á eignum undir 30 milljónum króna en ekki við verðmat. Þetta þýðir að úrvinnsla mála gengur mun hraðar fyrir sig en áður hefur verið og í mörgum tilvikum verður það til að lækka áhvílandi skuldir enn frekar. Í þriðja lagi mun Landsbankinn lækka aðrar skuldir lántaka sem teljast umfram greiðslugetu. Undir þetta falla meðal annars yfirdráttur og skuldabréfalán, lánsveð og fleira en ekki t.d. kortaskuldir eða lán sem eru með veði í fasteign eða bifreið skuldara. Niðurfærsla þessara skulda getur numið allt að 4 milljónum króna, en hún verður gerð að undangengnum sjálfvirku greiðslumati. Til þess að fá niðurfellingu skulda verða lántakar að veita Landsbankanum heimild til að meta greiðslugetu sína og gera samning við bankann um að eftirstöðvar verði greiddar með skilvísum greiðslum á 36 mánuðum. Miðað er við að greiðslur af eftirstöðvum annarra skulda fari ekki yfir 10% af ráðstöfunartekjum ársins 2010. Nánar má lesa um aðgerðir Landsbankans í meðfylgjandi fréttatilkynningu.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira