Fasteignamarkaðurinn kominn á svipað ról og 2008 11. maí 2011 13:28
Það sem af er ári hefur um 1.350 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu verið þinglýst sem er rúmlega 74% aukning frá sama tíma í fyrra og um 132% aukning frá sama tíma árið 2009. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýjustu tölur Þjóðskrár um fjölda þinglýstra leigusamninga. Í Morgunkorninu segir að þetta séu lítið eitt færri kaupsamningar en þinglýst var á svipuðu tímabili árið 2008 en þá voru þeir um 1.450 talsins. Þó er langt í land með að kaupsamningar nái sama fjölda og fyrir árið 2008. Má hér til samanburðar nefna að á árunum 2005 til og með 2007 voru að meðaltali um 3.200 kaupsamningar þinglýstir á umræddu tímabili, eða um 137% fleiri en nú. Síðan segir að þrátt fyrir að leigusamningar á þessu ári séu færri en undanfarin tvö ár má segja að enn sé ágætis sókn í leiguhúsnæði, sér í lagi miðað við það sem tíðkaðist árin fyrir hrun. Sé litið til ársins 2008 er fjöldi leigusamninga nú rúmlega 80% fleiri en þá og enn meiru munar þegar farið er lengra aftur í tímann. „Hefur því umfang leigumarkaðar aukist stórlega frá því fyrir hrun. Þó má reikna með að sú þróun sem verið hefur á undanförnum mánuðum, þ.e. að leigusamningum fækki milli ára, haldi áfram næsta kastið samhliða því að kaupsamningum um íbúðarhúsnæði fari fjölgandi líkt og verið hefur á sama tíma,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira