Samherji tekur upp hugbúnað frá Marel 11. maí 2011 13:34 Finnbogi Reynisson (í miðju) með fulltrúum Marels við undirskrift samningsins.
Hugbúnaðurinn Innova frá Marel verður innleiddur við framleiðslustýringu og vinnslueftirlit hjá öllum landvinnslueiningum Samherja og völdum skipum fyrirtækisins. Fulltrúar fyrirtækjanna undirrituðu samning þess efnis í síðustu viku. Fjallað er um málið á vefsíðu Samherja. Þar segir að samningurinn sé mikilvægur áfangi fyrir Samherja sem hefur í stefnu sinni að nýta sér ávallt nýjustu tækni sem völ er á hverju sinni í starfseminni, bæði á sjó og í landi, á Íslandi og erlendis. Umfang fyrirtækisins er mikið og því mikilvægt að hafa sem besta yfirsýn og eftirlit með framleiðslunni. Innova hugbúnaðurinn mun sjá stjórnendum fyrir öllum þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um framleiðsluna, allt frá því að tekið er við hráefninu þar til fullunnin vara er send úr húsi. „Við höfum mjög góða reynslu af samstarfi við Marel þegar kemur að hugbúnaði fyrir okkar vinnslur. Marel þekkir þarfir sjávarútvegsins og það endurspeglast í virkni og notagildi hugbúnaðarins. Okkar markmið er að hafa traustan hugbúnað sem er í stöðugri þróun og fylgir okkur inn í framtíðina. Við teljum Marel uppfylla þær kröfur og því veljum við Innova,“ segir Finnbogi Reynisson, yfirmaður upplýsingatæknimála hjá Samherja. Hafist verður handa við að innleiða hugbúnaðinn strax í maí á þessu ári.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira