Ráðherra hefur engin svör um laun bankastjórnenda 11. maí 2011 14:35
Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra átti engin svör við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar þingmanns Vinstri grænna um launagreiðslur til stjórnenda banka, skilanefnda og slitastjórna. Fyrirspurnin Árna Þórs hljóðaði svo: 1. Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers af æðstu stjórnendum (bankastjóra og bankaráðsmanna) Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands árin 2005–2008? 2. Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers af æðstu stjórnendum (bankastjóra og bankaráðsmanna) Arion banka, Íslandsbanka og Nýja Landsbankans 2009–2011 (febrúarloka)? 3. Hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til hvers skilanefndarmanns og slitastjórnarmanns Glitnis, Kaupþings og Landsbanka Íslands frá því að þessar nefndir/stjórnir voru settar á laggirnar til febrúarloka 2011? 4. Hvernig eru laun bankastjóra, bankaráða, skilanefnda og slitastjórna ákveðin? Óskað er eftir sundurliðun á hvern mánuð fyrir umrædd tímabil svo að launabreytingar og tímasetningar þeirra komi fram. Svar ráðherra var eftirfarandi: „Ráðuneytið safnar engum upplýsingum frá bönkum, skilanefndum eða slitastjórnum. Fjármálaeftirlitið og eftir atvikum Seðlabanki Íslands safna upplýsingum frá eftirlitsskyldum aðilum í samræmi við það eftirlitshlutverk sem þessum stofnunum er falið. Í von um að geta veitt fyrirspyrjanda svör við því sem spurt er um í fyrirspurninni ritaði ráðuneytið Fjármálaeftirlitinu bréf 17. mars sl. og óskaði eftir að stofnunin sendi ráðuneytinu svardrög eftir því sem upplýsingar væru til hjá stofnuninni. Í svarbréfi Fjármálaeftirlitsins kemur fram að stofnunin hafi ekki aðrar upplýsingar um það spurt er um en þær sem komið hafa fram opinberlega, svo sem í ársreikningum fjármálafyrirtækja. Í ljósi framangreinds hefur ráðuneytið ekki tök á því að svara þeim atriðum sem spurt er um í fyrirspurninni."
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira