SAF kvartar undan meðhöndlun lána í bankakerfinu 12. maí 2011 15:17
Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) átti í morgun fund með bankastjórnendum Íslandsbanka, Arion banka og Landsbanka. Tilefni fundarins var kvartanir stjórnenda fyrirtækja í ferðaþjónustu um meðhöndlun lána en ennfremur var rætt um aðgang fyrirtækjanna að lánsfé og fyrirkomulag alferðatrygginga ferðaskrifstofanna. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi SAF. Þar segir að fulltrúar bankanna ræddu stöðuna og þau ferli sem farið er eftir t.d. beinu brautina. Þrátt fyrir miklar kvartanir fyrirtækja yfir þjónustunni vildu fulltrúarnir ekki taka undir að staðan væri svo slæm, það tæki vissulega langan tíma að ganga frá lánum þar sem um stórar upphæðir er að ræða og sögðust lána lífvænlegum fyrirtækjum til góðra verka þótt ekki sé búið að ganga frá endurskipulagningu lánanna. Voru fyrirtæki hvött til að koma til bankanna með góð verkefni. Sagt var frá markmiðum um að öll smærri og meðalstór fyrirtæki yrðu búin að fá tilboð fyrir 1. júní n.k.. Fram kom að beðið er eftir niðurstöðum í dómsmáli í hæstarétti um lögmæti erlendra lána, sem búist er við á næstunni og mun skipta miklu máli. Ekki vildu fulltrúar bankanna gangast við því sem kvartað var yfir og sögðu ferðaþjónustuna þá atvinnugrein sem hefði farið fyrst á skrið eftir hrun. Ekki gátu viðstaddir fulltrúar bankanna svarað miklu um alferðatryggingar og ljóst að það þarf að fá fund með þeim sem hafa með þau mál að gera innan bankanna. Rætt var um umboðsmann viðskiptavina í bönkunum og eru félagsmenn hvattir til þess að leita til þeirra ef þeir eru ósáttir við afgreiðslu bankanna, að því er segir í fréttabréfinu.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira