Dregur úr heildarafla á milli ára 13. maí 2011 09:16
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 17,6% minni en í apríl 2010. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 14,4% miðað við sama tímabil 2010, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Aflinn nam alls 36.816 tonnum í apríl 2011 samanborið við 79.699 tonn í apríl 2010. „Botnfiskafli dróst saman um tæp 2.800 tonn frá apríl 2010 og nam rúmum 32.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 13.300 tonn, sem er aukning um 455 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 5.300 tonnum sem er um 100 tonnum meiri afli en í apríl 2010. Karfaaflinn dróst saman um rúm 1.600 tonn samanborið við apríl 2010 og nam 4.900 tonnum. Um 4.200 tonn veiddust af ufsa sem er um 700 tonnum meiri afli en í apríl 2010.“ „Afli uppsjávartegunda nam 642 tonnum, sem er um 40.000 tonnum minni afli en í apríl 2010. Einungis var landað kolmunna í aprílmánuði. Flatfiskaflinn var tæp 1.600 tonn í apríl 2011 og dróst saman um rúm 400 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam tæpum 1.500 tonnum samanborið við rúmlega 900 tonna afla í apríl 2010,“ segir einnig. Þá segir að afli á föstu verði sé reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér sé árið 2009. „Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.“
Mest lesið Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila Viðskipti innlent Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Viðskipti innlent „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Neytendur Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Viðskipti innlent Rukkuð vegna þegar greiddra bílastæða og fá engin svör Neytendur Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Fleiri fréttir Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun