Viðskipti innlent

Aðeins tvær af tíu ábendingum framkvæmdar

Af samtals tíu ábendingum í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Vinnumálastofnun frá 2008 hafa einungis tvær komið til framkvæmda.

Á vefsíðu Ríkisendurskoðunnar segir að árið 2008 birti Ríkisendurskoðun skýrslu um Vinnumálastofnun sem geymdi tíu ábendingar um breytingar á skipulagi og starfsháttum stofnunarinnar og stjórnsýslu vinnumarkaðsmála. Nú þremur árum síðar hefur einungis tveimur þessara ábendinga verið fylgt.

Í nýrri skýrslu ítrekar Ríkisendurskoðun þær átta sem út af standa. Fimm eru ítrekaðar í óbreyttri mynd en þrjár með breyttu sniði, þar af er einni ábendingu sem upphaflega var beint til Vinnumálstofnunar nú beint til velferðarráðuneytisins. Lagt er til að:

Mótuð verði stefna um fyrirkomulag starfsendurhæfingar.

Stofnanaskipan velferðarmála verði endurskoðuð.

Stjórnskipulag Vinnumálastofnunar verði endurskoðað.

Kostir og gallar þess að stofna fagráð vinnumála verði metnir.

Stjórnir sjóða sem Vinnumálastofnun hefur umsjón með verði lagðir niður.

Greiðslukerfi ríkisins vegna almannatrygginga verði sameinuð.

Gerður verði árangursstjórnunarsamningur við Vinnumálastofnun.

Fram kemur að meginskýring þess hve fáar ábendingar hafa komið til framkvæmda sé sú að frumvarp um svonefnda Vinnumarkaðsstofnun, sem lagt var fram á Alþingi vorið 2010, hafi ekki hlotið afgreiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×