Þurfa að segja upp starfsfólki í sjávarútvegi JMI skrifar 14. maí 2011 18:38
Útgerðarfyrirtæki þurfa að segja upp fólki og leggja skipum ef frumvörp sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða verða að lögum, að mati framkvæmdastjóra LÍÚ. Sjávarútvegsráðherra kynnti frumvörpin á fréttamannafundi í dag en þau eru tvö. Annars vegar frumvarp til laga um breytingu á núgildandi lögum, sem er öllu minna frumvarp, en hins vegar nýtt frumvarp til laga um stjórn fiskveiða. Sjávarútvegsráðherra gerir ráð fyrir því að minna frumvarpið verði samþykkt á þessu vorþingi. Það kveður meðal annrs á um aukningu á strandveiðumm, aukningu heimilda í byggðatengdum aðgerðum, og jöfnunaraðgerð í þá veru að allir aflamarkshafar taki þátt í að leggja til í svo kallaða hluti eða potta. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að veiðigjaldið hækki um 70%. Stærra frumvarpið kveður á um samningaleiðina, en Jón Bjarnason segist vera bjartsýnn að Alþingi samþykki það fyrir jól. Í frumvarpinu kemur fram að handhafar aflahlutdeildar og krókaleyfa fá heimild til að gera 15 ára samning um nýtingarleyfi og rétt til að leita eftir framlengingu samningsins til næstu 8 ára. Í minnisblaði með frumvarpinu kemur fram að þessi breyting sé sú mikilvægasta í af þeim sem finna má í frumvarpinu. Með frumvarpinu séu tekin af öll tvímæli um meint eignarréttarlegt samband útgerðar og auðlindarinnar, sem er þar með óvéfengjanlega þjóðareign. Þá er tilfærsla á aflamarki til eins árs og varanlegum aflahlutdeildum milli aflamarkskerfa, bönnuð. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það alveg ljóst að þessi löggjöf muni veikja íslenskan sjávarútveg og gera honum illmögulegt til að standa undir því samfélagi sem við búum í. Friðrik segir að þeir sem hafi ætlað sér að leggja íslenskan sjávarútveg í rúst hafi tekist ætlunarverk sitt nokkuð vel. Friðrik bendir á að útgerðarfyrirtækin hafi reiknað með því að ný löggjöf gæfi þeim afnotatíma sem gerði reksturinn arðbærann. Þetta hafi m.a. mikil áhrif á lánskjör og aðra þætti. Allt þetta hafi mikil áhrif á sjávarútveginn. Það verði uppsagnir ef frumvarpið nái fram að ganga.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira