Björgólfur hafði betur: Máli Wessman vísað frá dómi Valur Grettisson skrifar 17. maí 2011 14:31 Róbert Wessman.
Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst á frávísunarkröfu Novator í dag í skuldamáli sem athafnamaðurinn Róbert Wessman höfðaði gegn fyrirtækinu, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. Róbert krafðist vangreiddrar árangurstengdrar þóknunar upp á um 30 milljónir evra, sem gera 4,6 milljarðar króna, af félögunum Novator Pharma Holding og Novator Pharma. Róbert var forstjóri Actavis til ársins 2008. Athafnamennirnir tveir, Björgólfur og Róbert, deildu um það hvernig starfslokum Róberts hefði borið að. Þannig vildi Björgólfur meina að Róberti hefði verið sagt upp, því neitaði hinsvegar Róbert sem krafðist í kjölfarið árangurstengdrar þóknunar. Átökum á milli Björgólfs og Róberts er þó hvergi lokið. Actavis Group stefndi Róberti til greiðslu skuldar upp á 300 milljónir króna vegna kúluláns sem Róbert fékk hjá félaginu til að kaupa hlutabréf í því. Þá hefur BeeTeeBee Ltd., sem er í eigu Björgólfs Thors, stefnt Róberti og Burlington Worldwide Limited til greiðslu 1,2 milljarða skuldar vegna annars láns samkvæmt frétt sem birtist á vef DV í apríl síðastliðnum. Talsmenn Róberts segja að þeir séu að fara yfir úrskurðinn og enn sé óákveðið hvernig brugðist verður við honum.
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Sjá meira