Segja BTB hafa komið Actavis í skjól í gegnum net aflandsfélaga Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. maí 2011 18:30
Fulltrúar Róberts Wessman fullyrða að Björgólfur Thor hafi komið verðmætustu eign sinni, Actavis, í skjól í gegnum félag á Tortóla-eyju í gegnum flókið aflandsfélaga net. Róbert segir að einkatölvupóstur Björgólfs Thors sýni að áhyggjur hans af erfiðri fjárhagsstöðu fyrirtækja sem hann hefur höfðað mál gegn séu á rökum reistar. Skærurnar hafa gengið á milli Björgólfs Thors og Róberts Wessman undanfarna mánuði. Eitt sinn perluvinir og samherjar sem hrósuðu hvor öðrum á víxl í fjölmiðlum en í dag svarnir óvinir. Ágreininginn má rekja til starfsloka Róberts hjá Actavis í ágúst 2008. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær frá dómi máli sem Róbert höfðaði gegn félögunum Novator Pharma í Lúxemborg og Novator Pharma Holding vegna ógreiddrar 4,6 milljarða króna árangurstengdrar þóknunar. Málinu verður haldið áfram. Lögmaður Róberts segist óttast drátt á málarekstrinum þar sem félögin tvö yrðu hugsanlega gjaldþrota í millitíðinni. Talsmaður Björgólfs Thors vísaði þessu á bug.„Ekkert eigið fé er eftir í strúktúrnum" Tölvupóstur sem Björgólfur Thor sendi Róberti sjálfur hinn 7. september 2009, gefur hins vegar tilefni til að ætla að lítið fáist upp í kröfurnar. Því þar segir Björgólfur Thor orðrétt: „Eins og staðan er í dag þá er Actavis yfir skuldsett og getur ekki staðið undir greiðslum á þeim lánum sem hvíla á félaginu. Þá er einnig ljóst að fjárhæð skulda er verulega umfram verðmæti félagsins og því ekkert eigið fé er eftir í strúktúrnum, þ.m.t. í Novator Pharma sárl (þar sem þú ert hluthafi) og Novator Pharma Holding Limited." Það sama kemur fram í bréfi sem Jan Rottler, stjórnarmaður í Novator Pharma, sendi Róbert í ágúst sama ár. Róbert fái því miður ekkert greitt. Róbert hefur ekki viljað koma í viðtal vegna málsins. Fulltrúar hans segja að Björgólfur Thor hafi hlutnum í Actavis í skjól og fært eignarhaldið til Tortóla-eyju í gegnum sex eignarhaldsfélög. Félögin sex, sem skráð eru í Lúxemborg eru öll undir heitinu Argon, eða skyldum nöfnum. Róbert og hans menn eru ósáttir því eignarhaldið hafi farið út úr Novator Pharma, sem Róbert var hluthafi í. Hann hafi því farið á mis við mikla fjárhagslega hagsmuni og borið skarðan hlut frá borði. Talsmaður Björgólfs Thors sagði að uppstilling eignarhalds á hlutnum í Actavis hefði verið með vitneskju og samþykki Deutsche Bank sem væri stærsti kröfuhafi félaga í hans eigu.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira