Viðskipti innlent

Tvær hópuppsagnir í apríl kostuðu 73 vinnun sína

Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í apríl síðastliðnum. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í kennslu og stjórnun og við hugbúnaðargerð. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 73 manns.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að gert sé ráð fyrir því að þeim sem missa vinnuna í kennslu og stjórnun verði boðin önnur störf.

Þeir starfsmenn, sem sagt hefur verið upp, koma til með að missa vinnuna aðallega í ágúst til október 2011. Ástæður uppsagnanna eru sagðar rekstrarerfiðleikar, endurskipulagning og hagræðing.

Alls hafa Vinnumálastofnun borist tilkynningar um uppsagnir 296 manns í hópuppsögnum það sem af er ári, mest í mannvirkjagerð eða 129 manns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×