Volkswagen ekki selst jafn illa í 40 ár Breki Logason skrifar 4. maí 2011 18:48
Nýir bílar frá Volkswagen hafa ekki selst í jafn litlum mæli hér á landi í tæp 40 ár, á meðan salan í löndunum í kringum okkur er á uppleið. Sölustjóri framleiðandans í Evrópu segir fólk halda að sér höndum vegna þess óvissuástands sem hér ríki. Thomas Mills hefur unnið hjá Volkswagen í tuttugu ár og hefur komið þrisvar sinnum hingað til lands. Hann segir að í kjölfar efnahagskreppunnar hafi salan fallið úr 10 til 12 þúsund bílum á ári niður í um tvö þúsund nú. „Slíkt hefur ekki gerst á Íslandi síðan 1972. Svipað var upp á teningnum á markaðnum í Hollandi þar sem um 500 þúsund bílar seldust árið 2009 en bílasala fór niður í um 300-380 þúsund bíla á ári," segir Mills. Hinsvegar sé nú gert ráð fyrir að 550 til 600 þúsund bílar verði seldir í Hollandi en svipuð aukning er að eiga sér stað í löndunum í kringum okkur. En hversvegna telur Thomas að svo fáir bílar séu að seljast hér á landi? „Ég tel að hugarfarið spili hér inn í. Ástandið er þannig að fólk finnur til óöryggis, fólk veit ekki hvað gera skal og hver staðan verður í næstu viku,“ segir Mills. Hann bætir við að atvinnuleysi sé hátt hér á landi og fólk ákveði því að eiga bílana sína lengur. Hann er þess þó fullviss að sala á nýjum bílum aukist á næstunni og nefnir þar nýja tækni eins og framleiðslu á metanbílum.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi,“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Fleiri fréttir Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Sjá meira