Viðskipti innlent

Raunhækkun á innlendri kortaveltu milli ára

Kreditkortavelta heimila jókst um 6,0% í janúar-mars í ár miðað við janúar-mars í fyrra. Debetkortavelta dróst saman um 1,2% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar-mars í ár um 2,6% miðað við janúar-mars í fyrra. Um 0,3% raunhækkun er að ræða.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar. Þar segir að greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 22,2% en erlend greiðslukortavelta hérlendis dróst saman um 9,4% í janúar-mars 2011 miðað við sömu mánuði árið áður.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 2,3% (miðað við vísitöluna í janúar-mars) sem veldur 0,3% raunhækkun á innlendri greiðslukortaveltu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×