Sjómannafélagið áfrýjar gengisdómi Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. maí 2011 13:03 Dómnum hefur verið áfrýjað.
Sjómannafélag Íslands hefur áfrýjað máli gegn Arion banka vegna ofgreiðslu af húsnæðisláni. Í febrúar var Arion banki dæmdur til að greiða Sjómannafélagi Íslands tæpar sex milljónir króna vegna ólögmæts gengistryggðs fasteignaláns. Orlofssjóður Sjómannafélag Íslands keypti íbúð í Reykjavík og tók lán hjá Kaupþingi banka til að fjármagna kaupin. Veðskuldabréf var gefið út 17. júlí 2007, en lánið hljóðaði upp á 15 milljónir króna til tuttugu ára. Lánið var greitt upp hraðar en gert var ráð fyrir, eða á tæpum þremur árum, og námu þá raungreiðslur til bankans tæpum 37 milljónum. Eftir gengisdóm Hæstaréttar um bílalán frá því í sumar hélt Sjómannafélagið því fram að gengistrygging fasteignalána væri ólögmæt og félagið hefði greitt um 20 milljónum of mikið af láninu miðað við samningsvexti. Héraðsdómur féllst á rök Sjómannafélagsins og dæmdi Arion banka til að endurgreiða Sjómannafélaginu hluta til baka. Héraðsdómur taldi hins vegar að Arion banki hafi sýnt nægilega fram á það að hann hafi fyrst eignast kröfuna á hendur Sjómannafélaginu í janúar 2010, en áður átti Kaupþing banki kröfuna. Vegna þess hversu seint Arion banki eignaðist kröfuna bæri bankanum einungis að greiða 5,9 milljónir til baka af þeim 20 milljónum sem ofgreiddar höfðu verið. Við þetta er Sjómannafélagið ósátt og krefst hærri endurgreiðslna. Arion banki krafðist hins vegar sýknu í málinu og gagnáfrýjaði þegar að ljóst var að Sjómannafélagið myndi áfrýja.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira