Gullæði í uppsiglingu í Noregi 21. nóvember 2011 07:03
Gullæði er um það bil að skella á í Noregi eftir að mikið magn af gulli og öðrum dýrmætum málmum fannst í héraðinu Troms síðasta sumar. Troms liggur nyrst í Noregi og það var flugvél útbúin sérstökum segulleitartækjum sem fann gullið í fjalllendinu þar. Fyrir utan verulegt magn af gulli fannst einnig töluvert af kopar, nikkel, zinki og hinu geislavirka efni thorium sem hugsanlega má nota í kjarnorkuverum í stað úrans. Í umfjöllun norskra fjölmiðla kemur fram að námufélög standi nú í biðröðum fyrir utan norska stjórnarráðið eftir að fá leyfi til frekari leitar og vinnslu á þessum auðæfum í Troms. Áður var talið að verðmæti óunninna málma í jörðu í Noregi næmi um 1.400 milljörðum norskra króna eða hátt í 30.000 milljörðum króna. Þessi fundur í Troms er talin auka þau verðmæti verulega. Trond Giske iðnaðarráðherra Noregs vill hefja námuvinnslu í Troms eins fljótt og hægt er. Morten Smelror forstjóri rannsókna hjá Jarðvísindastofu landsins segir hinsvegar að fyrst verði að kanna svæðið nánar og afla frekari upplýsinga.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira