Verðbólguvæntingar stjórnenda aukast verulega 1. apríl 2011 12:37
Stjórnendur á meðal stærstu fyrirtækja landsins vænta þess nú að verðbólgan á næstu 12 mánuði verði 4,0%. Þetta eru niðurstöður könnunar Capacent Gallup sem Seðlabanki Íslands birtir í Hagvísum bankans fyrir marsmánuð. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta sé þetta veruleg aukning frá því síðasta könnun var gerð, sem var í desember síðastliðnum, en þá bjuggust þeir við að árstaktur verðbólgu yrði 2,0% á næstu 12 mánuðum og þá undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Jafnframt er þetta í fyrsta sinn síðan á fjórða ársfjórðungi 2009 sem verðbólguvæntingar stjórnenda aukast frá síðustu könnun. Þegar könnunin var gerð, sem var á tímabilinu 10. - 17. mars, var aðeins búið að birta vísitölu neysluverðs fyrir febrúarmánuð og nam þá tólf mánaða taktur vísitölunnar 1,9%. Er því um verulegan mun að ræða á milli verðbólgunnar á þeim tíma sem framkvæmd könnunarinnar átti sér stað og þeirrar sem stjórnendur fyrirtækja væntu til eins árs, og í raun hefur munurinn oftar en ekki legið á hinn veginn frá því að mælingar hófust á verðbólguvæntingum. Það að stjórnendur vænti nú meiri verðbólgu kemur okkur ekki á óvart enda í takti við þá þróun sem við höfum verið að reikna með. Þó er ljóst að þetta er nokkru meiri verðbólga en við og aðrir sem gera opinberar verðbólguspár höfum verið að reikna með. Ekki er ólíklegt að þær miklu hækkanir sem hafa orðið á olíuverði og verði á öðrum hrávörum á alþjóðlegum mörkuðum og hafa leitt þess að verðbólgan hefur aukist víðast hvar erlendis hafi sett sitt mark á sýn stjórnenda nú, enda hafa fréttir þess efnis verið fyrirferðarmiklar í fjölmiðlum landsins sem og erlendis á síðustu mánuðum.
Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira