Regluleg meðallaun tæp 350 þúsund á mánuði 30. mars 2011 09:03
Regluleg laun á almennum vinnumarkaði voru 348 þúsund krónur að meðaltali árið 2010. Algengast var að regluleg laun væru á bilinu 175–225 þúsund krónur og var rúmlega fimmtungur launamanna með laun á því bili. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að þá var helmingur launamanna með 294 þúsund krónur eða lægri laun á mánuði. Regluleg laun karla voru 374 þúsund krónur að meðaltali en regluleg laun kvenna 309 þúsund krónur. Heildarlaun þeirra launamanna sem teljast fullvinnandi voru að meðaltali 438 þúsund krónur á mánuði. Algengast var að heildarlaun væru á bilinu 325–375 þúsund krónur og voru 15% fullvinnandi launamanna með heildarlaun á því bili. Helmingur launamanna var með heildarlaun undir 391 þúsund krónur árið 2010 en það var miðgildi heildarlauna. Regluleg heildarlaun voru að meðaltali 409 þúsund krónur og miðgildi þeirra var 363 þúsund krónur. Regluleg laun fullvinnandi launamanna voru 381 þúsund krónur að meðaltali og miðgildið var 321 þúsund krónur. Greiddar stundir voru að meðaltali 43,2 á viku. Launamenn í efsta fjórðungi launastigans voru að jafnaði með 2,7 sinnum hærri laun en launamenn í lægsta fjórðungi árið 2010. Þetta má sjá ef fjórðungastuðull launa er skoðaður. Fjórðungastuðull er hlutfallið á milli launa í efsta fjórðungi launastigans og í neðsta fjórðungi hans og er því mælikvarði á bilið á milli hæstu og lægstu launa. Fjórðungastuðull heildarlauna var 3,0 árið 2005 og hækkaði fram til ársins 2008 og fór í 3,3. Síðastliðin tvö ár hefur stuðullinn lækkað og var 2,7 árið 2010. Þær niðurstöður sem hér er greint frá byggja á launarannsókn Hagstofu Íslands og ná til tæplega 30 þúsund launamanna á almennum vinnumarkaði.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira