Landsbankinn kaupir hlut í Arion verðbréfavörslu hf. 22. mars 2011 13:22
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um að Landsbankinn kaupi nýtt hlutafé í Arion verðbréfavörslu hf. Arion banki er í dag eigandi alls hlutafjár. Viljayfirlýsingin er undirrituð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki eftirlitsstofnana. Við kaup Landsbankans á nýju hlutafé í Arion verðbréfavörslu verður nafni félagsins breytt í Verdis. Í tilkynningu segir að Arion verðbréfavarsla er þjónustufyrirtæki fyrir innlendar og erlendar fjármálastofnanir og fyrirtæki á fjármálamarkaði. Það býður sérsniðnar og einfaldar lausnir í vörslu verðbréfa, bakvinnslu og umsýslu verðbréfasjóða. Samkvæmt yfirlýsingunni munu Landsbankinn og Verdis gera með sér þjónustusamning sem felur í sér að Verdis annast uppgjör og vörslu verðbréfa og þjónustu fyrir Landsbankann og dótturfélag Landsbankans sem rekur verðbréfa, fjárfestingar – og fagfjárfestasjóði. Markmiðið með kaupunum er að ná fram hagræðingu. Það verður gert með aukinni sjálfvirkni og samnýtingu starfsfólks og ýmissa rekstrarþátta. Auk þess verður mun hagkvæmara að byggja upp þekkingu, rekstur og tölvukerfi á einum stað. Engar uppsagnir verða við þessa breytingu en starfsfólk frá Landsbankanum mun flytjast til Verdis. Starfsfólk Landsbankans og þeirra þekking verður mikilvæg viðbót við þann öfluga hóp starfsmanna sem í dag starfar hjá Arion verðbréfavörslu. Forsvarsmenn Arion banka og Landsbankans eru einhuga um að fjölga hluthöfum Verdis í framtíðinni og er stefnt að því að sameiginlegur eignarhlutur þeirra verði kominn niður fyrir 50% innan þriggja ára. Stefnt er að undirritun samnings í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar fyrir 30. apríl 2011.
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Fleiri fréttir Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Sjá meira