Ekki bein tengsl á milli kvótakerfis og byggðaþróunnar 22. mars 2011 14:06
Ekki er hægt að finna beina tengingu á milli kvótakerfisins og þróunar byggðar frá því að kerfinu var komið á fyrir meira en aldarfjórðungi. Þetta er niðurstaða Birgis Þórs Runólfssonar, dósents við Hagfræðideild Háskóla Íslands og kom fram í erindi sem hann flutti á málþingi Áhugahóps háskólamanna um sjávarútvegsmál nýverið. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar kemur fram að mat Birgis Þórs er að jafnframt sé ómögulegt að segja fyrir um hver íbúaþróun hefði orðið á landsbyggðinni ef annað fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar hefði orðið ofan á. Í erindi sínu beindi hann sjónum sínum m.a. að Vestfjörðum en sá landshluti hefur oft verðið nefndur þegar samspil byggðaþróunar og kvótakerfisins er rætt. Birgir Þór rakti í erindi sínu að íbúum á Vestfjörðum hefði fækkað viðstöðulaust frá því 1945 ef undan væri skilinn áratugurinn á milli 1970 og 1980. Ekki væri hægt að sýna fram á nein tengsl á milli þeirrar þróunar og heildarfiskafla í þessum landshluta því fólksfækkunin hefði verið stöðug, jafnt fyrir sem eftir daga kvótakerfisins. Hann lauk erindi sínu með því að vitna í skýrslu sem unnin var af Þjóðhagsstofnun árið 2000 og ber heitið Stjórnkerfi fiskveiða og byggðaþróun. Þar segir: „Það má ljóst vera af ofangreindri umfjöllun að samband milli búsetuþróunar og fiskveiðistjórnunarkerfisins eins og það hefur verið framkvæmt hér á landi er afar flókið. Því er þeirri spurningu enn ósvarað hver sé þáttur þess í þeirri fólksfækkun sem sannarlega hefur átt sér stað á undanförnum árum í mörgum útgerðarstöðum á landinu. Enn erfiðara er að segja til um hvort eitthvert annað stjórnkerfi fiskveiða hefði reynst betur að því er áhrif á búsetuþróunina varðar." Ekki er hægt að finna beina tengingu á milli kvótakerfisins og þróunar byggðar frá því að kerfinu var komið á fyrir meira en aldarfjórðungi. Þetta er niðurstaða Birgis Þórs Runólfssonar, dósents við Hagfræðideild Háskóla Íslands og kom fram í erindi sem hann flutti á málþingi Áhugahóps háskólamanna um sjávarútvegsmál nýverið. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar kemur fram að mat Birgis Þórs er að jafnframt sé ómögulegt að segja fyrir um hver íbúaþróun hefði orðið á landsbyggðinni ef annað fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar hefði orðið ofan á. Í erindi sínu beindi hann sjónum sínum m.a. að Vestfjörðum en sá landshluti hefur oft verðið nefndur þegar samspil byggðaþróunar og kvótakerfisins er rætt. Birgir Þór rakti í erindi sínu að íbúum á Vestfjörðum hefði fækkað viðstöðulaust frá því 1945 ef undan væri skilinn áratugurinn á milli 1970 og 1980. Ekki væri hægt að sýna fram á nein tengsl á milli þeirrar þróunar og heildarfiskafla í þessum landshluta því fólksfækkunin hefði verið stöðug, jafnt fyrir sem eftir daga kvótakerfisins. Hann lauk erindi sínu með því að vitna í skýrslu sem unnin var af Þjóðhagsstofnun árið 2000 og ber heitið Stjórnkerfi fiskveiða og byggðaþróun. Þar segir: „Það má ljóst vera af ofangreindri umfjöllun að samband milli búsetuþróunar og fiskveiðistjórnunarkerfisins eins og það hefur verið framkvæmt hér á landi er afar flókið. Því er þeirri spurningu enn ósvarað hver sé þáttur þess í þeirri fólksfækkun sem sannarlega hefur átt sér stað á undanförnum árum í mörgum útgerðarstöðum á landinu. Enn erfiðara er að segja til um hvort eitthvert annað stjórnkerfi fiskveiða hefði reynst betur að því er áhrif á búsetuþróunina varðar."
Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira