Héraðsdómur hafnaði 227 milljón króna kröfu Reykjanesbæjar 24. mars 2011 14:26 Reykjanesbær.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Reykjanesbæjar um að fá 227 milljónir króna endurgreiddar sem töpuðust hjá Landsvaka í bankahruninu. Það var Landsbankinn, sem er hinn stefndi í málinu, sem sá um eignastýringu fyrir Reykjanesbæ en alls sá bankinn um að ráðstafa 600 milljónum króna fyrir bæjarfélagið. Fjármálastjóri Reykjanesbæjar sendi tölvupóst til Landsbankans þann 30. september 2008 þar sem sagði: „Í framhaldi af atburðum síðustu daga hér heima og erlendis, þá viljum við losa fjármagnið okkar úr fastri eignastýringu og hafa það lausara fyrir okkur. Hvernig gerum við slíkt?" Þá hringdi starfsmaður bankans beint í fjármálastjórann en þá var fjármagnið ekki leyst út. Það var svo 6. október sama ár sem fjármálastjórinn sendi annan póst þar sem hann vildi að fjármagnið yrði leyst út úr peningamarkaðssjóðnum og lagt inn á ákveðinn reikning. Þá aftur á móti var lokað fyrir fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í öllum peningamarkaðssjóðum Landsvaka í því skyni að tryggja hagsmuni og jafnræði hlutdeildarskírteinishafa. Að lokum var hlutdeildarskírteinishöfum greiddar þær fjárhæðir sem þeir áttu inni í sjóðunum, þó með afföllum. Þannig tapaði Reykjanesbær 187 milljónum á sjóðnum. Þeir kröfðust í kjölfarið endurgreiðslu upphæðarinnar með dráttarvöxtum, eða tæplega 230 milljónir króna. Í niðurstöðu dómsins er ekki fallist á þau rök Reykjanesbæjar að í tölvupósti fjármálastjóra hans frá 30. september 2008 til Landsbankans hafi falist fyrirmæli um innlausn á fjármunum Reykjanesbæjar. Þykir orðalag tölvupóstsins, endurrit símtala, framburður fjármálastjórans fyrir dómi og síðari samskipti fjármálastjórans við starfsmann bankans taka af öll tvímæli í þá veru. Kröfu Reykjanesbæjar gegn Landsbankanum var því hafnað.
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Sjá meira