Viðskipti innlent

Bílastæðavörður verðlaunaður fyrir framúrskarandi þjónustu

Það ríkti mikil gleði á ráðstefnu SA og SVÞ í morgun þegar Ásbjörn Valur Sigurgestsson, starfsmaður Bílastæðasjóðs var verðlaunaður fyrir framúrskarandi þjónustu samkvæmt tikynningu frá SA og SVÞ.

Ásbjörn Valur hefur starfað hjá Bílastæðasjóði síðan 1992 og lengst af í bílageymslunni á móti Þjóðleikhúsinu og kunna margir góðar sögur af Ásbirni eftir að hafa átt í samskiptum við hann.

Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir formaður valnefndar sagði þetta um valið:

„Ásbjörn hefur verið nefndur alveg síðan ég byrjaði að kenna fyrir allnokkrum árum, sem sá einstaklingur sem fer fram úr væntingum þegar kemur að þjónustu. Margir hafa sagt að Ásbjörn breyti deginum með jákvæðni og frábærri þjónustulund. Það er því mikill heiður að fá að veita honum þessa viðurkenningu."

Þá var Icelandair valið besta þjónustufyrirtæki ársins 2011. Í umsögn valnefndar segir:

„Þjónustuvitund, stefnumótandi þjónustustefna, viðbragðsflýtir og sveigjanleiki gagnvart utanaðkomandi rekstrarþáttum s.s. krísum og vel skilgreind þjónustukeðja eru helstu ástæður þess að Icelandair varð fyrir valinu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×